Enn ein fjöruferðin á dagskrá. Við lögðum af stað í björtu og ætluðum í skelja og steinaleit í fjöruborðinu. Við villtumst aðeins af leið en fundum loksins fallega litla fjöru sem við höfðum ekki komið í áður.
Allir voru í stuði og til í að finna fallega skeljar, jafnvel krossfiska og ígulker ef heppnin yrði með okkur.
Ekki var annað hægt en að dást að fallegu sólarlagi.
Kuldinn beit aðeins í og sumir þurftu mömmu til að hughreysta sig.
Foreldrunum leist nú samt ekki alveg nægilega vel á fjöruna. Drullan var mikil og dæturnar voru nú ekkert alveg á því að hlýða foreldrunum og óðu drulluna galvaskar. En þá kárnaði gamanið. Drullan var svo þétt í sér að erfitt var að komast ferðar sinnar.
Pabbinn óð að sjálfsögðu drulluna að hnjám og bjargaði heimasætunum úr frekari ógöngum. Þær voru hins vegar orðnar heldur kaldar og þáðu mömmunudd þegar að í bílinn var aftur komið. Á leiðinni heim sögðum við hvort öðru rökkursögur (léttari útgáfan af draugasögum) og þegar að heim kom beið heitt bað þeirra sem vildu og pizzunni fagnað af svöngum mallakútum.
Þóra Guðrún náði að tína nokkrar skeljar og steina áður en allt fór á versta veg og útsýnið var óviðjafnanlegt... ferðin var því velheppnuð þrátt fyrir allt.
Hamingja er eitthvað sem flestir þrá. Fyrir nokkrum árum tók ég ákvörðun um að vera hamingjusöm, sjá það sem gott er og veitir mér hamingju. Hamingjan kemur ekki sjálfkrafa hún er val. Við þurfum öll að hafa örlítið fyrir henni.
Showing posts with label Útivera. Show all posts
Showing posts with label Útivera. Show all posts
Tuesday, October 28, 2014
Friday, October 18, 2013
Margt leynist í fjörunni
Við elskum fjöruferðir. Förum oft á ári. Dásamlegt að finna kraftinn í sjónum, hvítfissandi öldurnar, mjúkan sandinn, fagrar skeljar og heillandi kuðunga. Stelpurnar hafa sérstaklega gaman að því að skoða og leita uppi það sem hafið hefur skilað af sér. Þara, krabbaklær, skeljar og kuðunga... einstaka marflær, ígulker, pétursskip, marglittur og ekki má gleyma mannanna drasli. Það getur líka heillað. Einn latan laugardag ákváðum við að hrista aðeins upp í mannskapnum, leyfa rokinu að þeyta okkur í Akrafjöruna góðu. Við tíndum skeljar og steina sem við hreinsuðum þegar að heim kom og límdum svo á lítil box sem ég sýni ykkur í næsta bloggi. Boxin geyma svo skart heimasætanna. Að sjálfsögðu hlýjuðum við okkur, eftir fjöruferðina, í Geirabakarí, fengum okkur heitt kakó og marsipan áður en haldið var heim og leið og föndrað. En látum myndirnar tala sínu máli.
![]() |
| Hittum hesta á leið okkar |
![]() |
| Komin í Akrafjöruna |
![]() |
| Ígulker |
![]() |
| Skeljar |
![]() |
| Valý Karen með pabba sínum |
![]() |
| Akrafjara |
![]() |
| Stuðsystur |
![]() |
| Marglitta |
![]() |
| Systurnar í Akrafjöru |
![]() |
| Togað í þara |
![]() |
| Krabbakló |
![]() |
| Á heimleið |
![]() |
| Stoppað í Geirabakarí |
Monday, October 7, 2013
Haustföndur
Ég strengdi þess heit þennan meistaramánuðinn að föndra meira með dætrum mínum. Sólríkur sunnudagur hentaði vel í það verkefni. Best var að við gátum sameinað föndrið við góða útiveru. Skallagrímsgarðurinn beið okkar litríkur og fallegur og við tíndum laufblöð í öllum regnbogans litum + nokkra köngla. Ekki var annað hægt en að velta sér í laufunum og klifra í trjánum. Sólin lýsti upp garðinn og litirnir urðu svo sterkir og fagrir. Ég var glöð að hafa tekið myndavélina með. Föndur er mjög góð fjölskylduskemmtun og við höfum verið mikið í því að perla, lita og klippa, líma og leira með okkar dætrum. Um að gera að hafa þetta einfalt svo allir geti tekið þátt en ég læt myndirnar tala sínu máli.
![]() |
| Fallegu trjágöngin í Skallagrímsgarði |
![]() |
| Könglaleit |
![]() |
| Nei sko, fann einn góðan |
![]() |
| Litadýrðin dásamleg |
![]() |
| "Að gera engil í laufin" |
![]() |
| Tókst svona vel :) |
![]() |
| Herdís María |
![]() |
| Þóra Guðrún |
![]() |
| Þetta er ungt og leikur sér |
![]() |
| Gömlu gömlu.... |
![]() |
| Valý Karen |
![]() |
| Fallegi Skallagrímsgarður |
![]() |
| Heim komið og föndurgerð í vændum |
![]() |
| Einfaldara getur þetta ekki orðið |
![]() |
| Góð stund hjá okkur |
![]() |
| Þóru Guðrúnar listaverk |
![]() |
| Herdísar Maríu listaverk |
![]() |
| Systurnar í Arnarkletti :) |
![]() |
| Fallegar skreytingar |
Subscribe to:
Posts (Atom)











































